Stofna afslætti með Woo Discount Rules Pro

Woo Discount rules býður upp á fjöldann allan af afsláttarmöguleikum og til að byrja með ætlum við að fara yfir mest notuðu afslættina

Þessar leiðbeiningar miðast við að þú sért með Woo Discount rules pro viðbótina uppsetta og ef þú ert ekki með hana að þá geturðu haft samband við okkur

  1. Þú finnur afsláttarviðbótina undir WooCommerce -> Discount rules
  2. Til að stofna nýjan afslátt að þá ýtirðu á „add new rule“
    Stofna afslátt í WooCommerce | Vefsíðugerð
  3. Hérna stofnar þú nafn á afsláttinn og í þessu dæmi ætlum við að velja afsláttartegundina „Prodjuct adjustment“
    Stofna tegund af afslætti í WooCommerce | Vefsíðugerð
  4. Núna geturðu valið hvernig afslátturinn skal vera og eins og þú sérð á myndinni að þá eru margir valmöguleikar en algengast er að velja „Products“ eða „Category“ og ef þú velur annað af þeim að þá geturðu valið í reitnum „select products“ hvað á að vera á afslætti
    4.1) svo er hægt að ýta á Add filter og þá excluda t.d. einstaka vörur þar sem afsláttur á ekki að ná yfir
    Hvaða vörur eiga að vera settar á afslátt í WooCommerce | Vefsíðugerð
  5. Í næsta skrefi að þá geturðu valið hvort að afslátturinn sé % eða afsláttur af verði
    Setja prósentuafslátt á vörur í WooCommerce | Vefsíðugerð
  6. Hér er hægt að setja allskonar reglur/condition á afsláttinn en flestir eru ekki að nota það fyrir basic afslætti af vörum eða vöruflokkum

    Ef afslátturinn er á skilgreindum tíma að þá er hægt að velja upphafstíma/upphafsdag og endatíma
    Afsláttarreglur fyrir WooCommerce netverslun | Vefsíðugerð

  7. Svo þarf að muna að Vista afsláttinn og passa að hann sé virkur

Deildu þessu:

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email

Aðrar leiðbeiningar