

WooCommerce Netverslun




WooCommerce Netverslun

Það hefur mögulega aldrei verið betri og skemmtilegri tími til að stofna og reka netverslun. Við höfum sérhannað fjöldann allan af netverslunum og tengt þær við hinar ýmsu lausnir eins og fjárhagskerfi (DK, Regla, Payday), sendingarkerfi (Dropp, Pósturinn ofl), áskriftarkerfi, afsláttarkerfi og svo margt margt fleirra.
Kosturinn við að setja upp netverslun upp með Woocommerce kerfinu er að möguleikarnir eru svo ótal margir. Ef þú ert í pælingum heyrðu þá í okkur og fáðu fast tilboð í þína netverslun.


WooCommerce Vefverslun
WooCommerce Vefverslun er eitt stærsta vefverslunarkerfi heimsins í dag og 22% af milljón stærstu netverslunum nota einmitt WooCommerce. Sökum stærðar er fátt sem ekki er hægt að gera og leysa með því að notast við WooCommerce í þinni netverslun.


WooCommerce viðbætur
Þú færð alla flóruna þegar kemur að viðbótum við WooCommerce netverslunarkerfið. Þar er meðal annars hægt að finna tengingar við íslensk og erlend kortafyrirtæki. Lausnir fyrir sölukerfi (POS), birgðakerfi, reikningakerfi og eiginlega hvað sem þig gæti vantað.


Vefhönnun og útlit


Responsive útlit
Öll útlit sem koma frá vefsidugerd.com eru skalanleg þannig að þau virka á öllum snjalltækjum.Þetta er mikilvægur þáttur þar sem 52% vefsíðna eru heimsóttar í gegnum snjalltæki.

Verkferli
- Skilgreina hlutverk vefsíðunnar
- Skilgreina markmið vefsíðu
- Skoða hvernig við getum látið vefsíðuna auðvelda viðskiptavininum lífið með því að leysa "vandamál" sem gætu verið til staðar.
- Fara yfir hönnun og virkni vefsíðunnar
- Fast tilboð gefið í verkefnið ásamt tímalínu

Íslensk netverslun
Hérna er smá tölfræði um Íslenska Netverslun. Samkvæmt Gallup að þá höfðu 76,8% Íslendinga verslað á netinu árið 2019.
Samkvæmt skýrslu Samtaka verslunar og þjónustu að þá var heildarvelta í netverslun 2,9% af allri innlendri smásölu árið 2017. Þar kom einnig fram að árlegur vöxtur í innlendri netverslun væri 14,9% á Íslandi. Þannig að það eru því mikil tækifæri fólgin í því að selja á netinu.

