Til að við hjá Vefsíðugerð getum tekið stjórnina á þínu léni og hýst hana t.d. hjá okkur að þá þurfum við að vera skráðir sem tæknilegur tengiliður hjá ISNIC.is. Það er hægt að koma í kring með 2 leiðum
1) senda okkur þinn notanda og lykilorð hjá isnic.is á info@vefsidugerd.com
2) Gera okkar notanda að tæknilegum tengilið og hérna eru skref fyrir skref leiðeiningar í slíku
1 – Þú skráir þig inn á síðuna þína hjá ISNIC sem er gert hérna
2 – Finnur umrætt lén í listanum þínum og ýtir á stillingar (skiptilykill icon)
3 – Þú ferð undir liðinn “Tengiliðir” og ýtir á hnappinn “Breyta”
4 – Þar undir Tæknilegur Tengiliður seturðu notandann ” RE2150 “og ýtir svo á áfram
Þá ætti þetta að vera komið og við erum þá komnir með leyfi til að breyta vistun/hýsingu á léninu.