Leitarvélabestun í WordPress

Við höfum leitarvélabestað vefsíður frá árinu 2007 og höfum undanfarið ár sérhæft okkur í WordPress leitarvélabestun.

Icon fyrir Vefsíðugerð

Leitarvélabestun

Leitarvélabestun (SEO) er samblanda af fjölmörgum þáttum og í dag er ekki nóg að skrifa góðan og markvissan texta.
Leitarorðagreining - SEO - Leitarvélabestun

Það þarf að tikka í mörg box til að gera síðuna meira aðlaðandi fyrir leitarvélar eins og Google & Bing. Einnig þarf að huga vel að tæknilegum þáttum vefsíðunnar / netverslunnar og skoða bæði kóða, uppsetningu og hraða síðunnar en allt þetta spilar saman til að gera síðu sem álitlegasta fyrir leitarvélarnar. Leitarvélar styðjast við yfir 200 faktora þegar þeir meta hvar vefsíða/netverslun stendur gagnvart leitarvélum og leitarvélabestun skiptist oftast í 2 flokka:

1) Efnisleg leitarvélabestun sem snýr að innihaldi og framsetningu á texta sem er skrifaður fyrir heimasíðuna. Til að hámarka árangur að þá er einnig þörf á leitarorðagreiningu og almennri rannsóknarvinnu.

2) Tæknileg leitarvélabestun sem er langur listi af hlutum sem þurfa að vera í lagi eins og hraði, brotnir tenglar, áframvísanir og ótal margt í viðbót.

Fjárfesting í leitarvélabestun er líklega ein sú besta sem þú getur gert

Fyrir þá sem selja vörur eða þjónustu á netinu að þá skiptir fátt meira máli en að finnast á leitarvélunum því að upphaf flestra netviðskipta má í flestum tilfellum rekja til þess að vara eða þjónusta fannst í gegnum leitarvélar eins og Google. 

Fjárfesting í leitarvélabestun er líklega ein sú besta sem þú getur gert því að staðreyndin er sú að þau fyrirtæki sem eru ekki sýnileg á leitarvélum fá lítil sem engin viðskipti af netinu en tölfræðin sýnir að minna en 1% af þeim sem leita af vöru eða þjónustu skoða ekki þær niðurstöður sem birtast á síðu 2 á Google (semsagt skoða ekki niðurstöður sem eru í 11 sæti eða hærra)

Við höfum áralanga reynslu af leitarvélabestun og fylgjumst vel með því sem er að gerast á þeim markaði þar sem kröfurnar breytast mjög hratt.

Ef þú vilt fá aðstoð eða tilboð í leitarvélabestun á þinni vefsíðu þá máttu endilega senda okkur línu og við svörum um hæl.

(SEO)Ferlið

Meðal þeirra þátta sem við förum yfir áður áður en raunverulega vinnan hefst eru…
  • Vefsíða / netverslun er tekin út í okkar tólum

  • Skoðum núverandi stöðu leitarorða

  • Gerum leitarorðagreiningu og finnum tækifæri

  • Förum yfir skipulag og strúktur á síðunni

  • Förum yfir alla þætti vefsíðunnar sem hafa áhrif á stöðu síðunnar

Vefsíðugerð - Mynd

The only way is up!

Meðal þeirra þátta sem við förum yfir áður áður en raunverulega vinnan hefst eru…
  • Það er hægt að klifra upp Google alveg eins og Mt.everest

  • Sparaðu þér tíma og áhyggjur og láttu okkur um þessa vinnu

  • Fáðu hraða og faglega þjónustu

Leitarvélabestun á Google
Fá tilboð

Öllum fyrirspurnum er svarað innan 24 tíma
Hafa samband
Þú getur líka haft samband við okkur í gegnum tölvupóst eða síma
Panta þjónustu
Við svörum öllum beiðnum innan 24 tíma